Þetta fallega sveitasetur er staðsett rétt fyrir utan Melbourne í Ástralíu.
Stíllinn er nútímalegur sveitastíll og er algjörlega dásamlegur. Litavalið er náttúrlegt í bland við hvíta og svarta litinn. Gamlir munir eru gerðir upp og notaðir í bland við það nýja.
Eldhúsið fær þó aðeins nútímalegri blæ en tíðkast hefur á gömlum sveitasetrum. Útkoman er æðisleg, svo smart og huggulegt.
Svefnherbergin eru líka virkilega falleg. Þar eru gamlir og nýjir hlutir settir saman og skapast þannig þægileg stemning. Brúnu tónarnir eru hlýlegir á móti hvítu veggjunum.
Meiriháttar hugguleg hús í sveitinni
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.