Krúttlegur sumarbústaður!
Það er ekkert leyndarmál að ég er mjög hrifin af því að gera upp gamla hluti og þetta hús er troðfullt af augnakonfektum. Algjörlega dásamlegt! Gólfið er lakkað hvítt og eins eru allir veggir hvítir. Húsgögnin eru flest öll gömul og uppgerð með mikinn karakter. Eldhúsið er mjög lítið en ferlega kósí fyrir sumarbústað.
Takið eftir merkingunum við hlið eldhússins, þær eru heimagerðar og setja mikinn svip á litla húsið. Litirnir eru líka þægilegir og mjúkir og eflaust frábært að eyða helgi og helgi í húsi eins og þessu…
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.