Þetta fallega sumarhús er rétt fyrir utan Osló í Noregi, með útsýni yfir fallegan fjörð.
Húsið er yfir 100 ára gamalt og fær það gamla að njóta sín. Nýjum hlutum er blandað saman við þá gömlu og er útkoman æðisleg. Eigendurnir gerðu húsið upp og nýttu hvern hluta hússins vel. Skemmtilegur andi er í hverju herbergi og hlýleikinn allsráðandi.
Hver myndi ekki vilja skreppa í smá frí og gista í svona fallegu húsi?
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.