Yndislegu fylgihlutirnir og húsgögnin frá HAY eru í algjöru uppáhaldi hjá mér þessa dagana og hafa að vísu verið lengi.
Hay hannar frísklega og fallega púða í mörgum litum sem geta breytt hvaða stól eða sófa í glamúr á augabragði. Húsgögnin eru líka mjög nútímaleg og falleg. Uppáhaldið mitt er samt Pinocchio mottan, hún er svo skemmtilega flott, hún fæst í tveimur stærðum og sómir sér einstaklega vel í barnaherbergjum og með Tekk húsgögnum.
Hay er tiltörulega nýtt merki en þau stofnuðu fyrirtækið árið 2002 í Danmörku og hafa unnið fjöldan allan af hönnunarverðlaunum síðan þá og eru afskaplega vinsæl um alla Evrópu.
HAY vörurnar fást í Epal og fyrir þá sem vilja skoða meira er heimasíðan hjá HAY hér
__________________________________________
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.