Þetta fallega heimili er staðsett í miðborg Madrid og var eitt sinn farfuglaheimili með 11 litlum herbergjum.
Nú státar farfuglaheimilið af þriggja herbergja bjartri íbúð, með stórum gluggum sem baðar heimilið af náttúrulegri birtu.
Stofan er án efa uppáhaldsrýmið mitt á þessu fallega heimili, enda er ég gersamlega kolfallinn fyrir grá-fjólubláa flauels sófasettinu og hver er ekki hrifin af Eames stólum og flottum bókaskápum?.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.