Þessi íbúð er ein af mínum uppáhalds – Hún er björt, falleg og stútfull af flottum munum eftir frábæra hönnuði.
Íbúðin er staðsett nálægt Kaupmannahöfn í Danmörku og ber hún öll hin helstu merki skandinavískrar hönnuðar. Gólfin eru nokkuð gróf viðargólf á móti hvítum veggjum og hurðum. Hurðarnar eru tvöfaldar sem gefa íbúðinni enn meiri karakter. Hvítir listar eru í loftum sem njóta sín einkar vel.
Húsgögnin eru öll frekar ljós og létt. Mikið um púða, kerti og bækur sem gefa hlýleika inn í rýmið. Takið eftir bókahillunum í stofunni, púðunum í sófanum sem eru flest allir frá norska merkinu By Nord. Mikið er um fallega lampa og hlýlegar mottur í einföldum stíl.
Heildarútkoman er algjörlega dásamleg! Létt – falleg – tímalaus!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.