Ég er alltaf svo hrifin af öllu DIY sem hægt er að gera á einfaldan og flottan hátt
Þessar myndahillur eru algjör snilld, það eina sem þú þarft eru nokkrar spítur, hanka og vír. Þá ertu komin með þessar líka fínu myndahillur sem myndu sóma sér vel á hvaða vegg sem er og gefa veggnum meiri persónuleika.
Hægt er að hafa spíturnar í hvaða lit sem er, hvort sem þær eru brúnar eða hvítar, þá held ég að þær komi alltaf jafn vel út. Svo er um að gera að skipta reglulega út myndum til að hafa fjölbreytileikann í lagi.
Skemmtilegt og einfalt!
{heimild: lizmarieblog.com}Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.