Frönsku Alparnir eru eitt flottasta skíðasvæði í heimi þar eiga margir ansi sæta “kofa” og þessi er einn af þeim fegurri.
Skemmtileg og litrík hönnun í bland við klassík. Húsið er á þremur hæðum með 6 herbergjum. Aðalherbergið er á efstu hæð en hin á annari hæð með sér svölum og baðherbergi. Ekkert er til sparað og eflaust ansi ljúft að gista þarna í góðum félagsskap á milli þess sem fólk brunar í brekkunum.
Lúxus og glamúr..ekki slæm samsetning!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.