Það er sérstaklega gaman þegar maður hittir á innlit í íbúð þar sem hver einasta mynd af íbúðinni hefur eitthvað sem maður elskar. Þessi íbúð er hreint út sagt dásamleg!
Dökka gólfið fær að njóta sín í hverju einasta rými með hvítu veggjunum og ljósa húsbúnaðirnum. Svart/hvítar, einfaldar myndir á veggjunum (og á gólfum), hvergi vantar grænar plöntur til að auka ferskleika og motturnar gefa heimilinu hlýju auka þægindi. Skinnið á gólfinu kemur mjög vel út í stofunni þó svo að ég sé ekki viss um að ég gæti haft það á mínu heimili.
Linda fæddist þann 23. október árið 1988. Í dag er hún mamma í sambúð og með geysilegan áhuga á innanhúshönnun en áhuginn vaknaði þegar hún keypti fokhelt hús árið 2013. Verandi lífefnafræðingur hefur Linda líka mikinn áhuga á snyrtivörum og virkni þeirra. Linda er líka mikill bakari en hún bakar til að fá útrás fyrir sköpunargleðina og nýtur þess að taka fallegar myndir af afrakstrinum. Allar myndir í matarbloggfærslum eru því teknar af Lindu sjálfri og þú getur lesið meira af efni frá henni bæði hér undir notendanafninu og á mondlur.com