Leikkonan Cameron Diaz greiddi rúman milljarð fyrir glæsilega íbúð í New York samkvæmt heimasíðu Daily Mail…
…Íbúðin, sem inniheldur þrjú svefnherbergi, er á besta stað í New York því hún er staðsett í Walker Tower byggingunni sem byggð var árið 1929 í Art Deco stíl.
Íbúðin hentar víst vel þeim sem vilja mikið næði því veggir og gólf eru einstaklega þykkir og dyraverðir vakta bygginguna allan sólahringinn.
Samkvæmt Daily Mail voru nokkrar stórstjörnur sem slógust um eignina er heppnin var með Cameron Diaz.
___________________________________________________
Myndirnar voru fengnar að láni af heimasíðu DailyMail.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.