Ohh ég veit…ég veit, það á ekki að skrifa um svona staði núna þar sem við höfum upplifað eitt kaldasta og blautasta sumar í manna minnum.
En þetta hús er svo gordjöss að það hálfa væri hellings nóg. Stundum er nóg að láta sig dreyma… það má nefinlega og um að gera að gera sem mest af því vegna þess að öðruvísi rætast víst ekki draumarnir.
Hús þetta er 300 fermetrar á stærð, samt er það sumarhús í augum eigenda þess. Gríðar stórt og fallegt með öllum þeim hugsanlegu þægindum sem fólk getur hugsað sér. Sumar og sól, fegurð og glæsileiki hvert sem augað lítur. Hátt til lofts og vítt til allra veggja.
Nú er bara að byrja að safna sér fyrir næsta sumar! Safna fyrir sól, hita og fegurð því það er alltaf hægt að taka falleg sumarhús á leigu, svo lengi sem þú átt peninga og ert ágætlega undirbúin.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.