Bleikur hefur alltaf verið einn af mínum uppáhaldslitum enda skil ég litlu stelpurnar svo vel að vilja hafa herbergin sín í sem mestum bleikum lit sem hugsast getur.
Þetta herbergi finnst mér ofurfallegt. Það er stelpulegt, svo hrein fegurð og smekklega innréttað. Mjög auðvelt er að útbúa herbergi fyrir stelpur, eina sem þarf er að ákveða litastemninguna, passa að húsgögnin sem til eru passi við. Nú svo er nú alltaf hægt að mála yfir eldri húsgögn þannig að þau passi betur við. Nettar hillur og speglar eru alltaf eitthvað sem gengur vel inn í stelpuherbergi. Enda hver þarf ekki bjútí spegil í herbergið sitt…
Njótið myndanna…
Ef þig vantar hjálp með hönnun heimilisins, barnaherbergin, stofuna eða heildina þá geturðu haft samband við Mio design – sjá hér.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.