Eilífðarunglinum af báðum kynjum fjölgar með degi hverjum. Sumir þeirra setja það í fyrsta sæti að slaka rosalega veeeel á eftir daginn… yfirleitt fram á nótt og stundum næsta morgun.
Hér má sjá heimili, vonandi einstæðs karlmanns, sem tekur slökunarfaktorinn mjög alvarlega. Líklegast svona Nexus nördatýpu sem stendur að fertugu en er enn ötull safnari Star Wars gripa og DVD diska.
Hér er “tjillið” aðal atriðið og íbúinn tekur það aaaalla leið með nokkuð góðum árangri, svona ef maður er fyrir ‘rosalegar græjur’ og góðan sófa.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.