Í tilefni af frábærri færslu um heimadekur birtast hér 16 myndir af baðherbergjum þar sem væri dýrðlegt að dekra svolítið við sjálfa sig!
Hvert öðru fallegra, flest með stórum gluggum, rúmgóð, baðkerin grafin niður eða skorin út í stein, risastórir sturtuhausar. Hönnuðum eru greinilega engin takmörk sett þegar kemur að frjóu og góðu ímyndunarafli… og pjattrófurnar geta vel ímyndað sér hvernig væri að dúlla sér þarna með hvítvínsglas í hönd og góða tónlist á fóninum, maska á andlitinu og fallegt kvöld framundan…
Draumur!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.