Þetta ofur fullkomna hús er í hæðum Santa Barbara..með útsýni til sjávar – Þvílík fegurð!
Húsið hefur verið í sömu fjölskyldu í þrjár kynslóðir og hefur nú verið gert upp til að mæta nútímanum. Hönnunin er æðisleg, vægast sagt. Gler hurðir sem opnast út á veröndina, sundlaug og spafílingur í umhverfinu í kring. Allt frekar rólegt og yfirvegað.
Húsgögnin er valin af kostgæfni og njóta þau sín vel svona létt og falleg. Útsýnið er stórkostlegt hvort sem þú situr inn í stofu eða á veröndinni. Þau breyttu einnig bílskúrnum í leikherbergi fyrir börnin.
Börnin þeirra eru unglingar og haldast meira heima þegar þau hafa svona gott afþreyingar herbergi. Yndisleg draumaeign á ævintýralega fallegum stað!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.