Ungur verkfræðingur festi kaup á þessari fallegu íbúð og fékk til liðs við sig tvo arkitekta til að gera hæðina upp.
Hann er hrifinn af dökkum litum, gömlum stíl og þægindum. Þetta var útkoman. Mjög glæsileg en án efa of dimm fyrir marga. Svarti liturinn fæ að njóta sín í innréttingum og eins á veggjum. Viðargólfið er gullfallegt og harmónar vel við rósetturnar í loftinu og flottu eldhússtólana.
Gullfalleg og vel heppnuð íbúð á besta stað í París. Hátt til lofts og gamli andinn í íbúðinni fær að njóta sín vel eftir breytingarnar.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.