Þetta er look sem ég gjörsamlega elska þessa dagana, steypt eða flotuð gólf og veggir. Finnst fátt fallegra en stílhreinar íbúðir eða hús þar sem hrá steypa fær að njóta sín.
Ótrúlegt hvað steypan ein og sér getur skapað hlýlegt andrúmsloft í herbergjum og poppað upp stór og opin rými. Steypan hefur áður verið þekkt sem útlit í ófrágengnu húsi en núna er hægt að pússa hana upp og lakka, ekkert möst lengur að parketleggja, flísa eða teppaleggja. Steypan er trend í innanhúshönnun sem við eigum eftir að sjá meira af. Einfaldleikinn getur nefnilega oft verið mjög smart.
Ég ætla að leyfa myndunum að tala sínu máli.
Gróft viðar borðið passar allveg ótrúlega vel á móti lakkaðri steypunni.
Falleg íbúð þar sem svart og hvít er alls ráðandi ásamt fallega steyptu gólfi.
Þessir fallegu veggja og loftalistar plús hrátt flotað gólf. Fullkomin blanda.
Tímalaus klassík eins og marmari sem er svo móðins núna smellpassar með steypunni.
Hér er steypan tekin alla leið…
Hrátt, grátt og agalega smart!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.