Ég er með ástríðu fyrir gömlum veðruðum húsgögnum. Húsgögnum með sál.
Skemmtilegast finnst mér að blanda þeim við hið nýja og krydda stofuna aðeins.
Þessir brúnu leðurstólar eru algjört augnayndi. Hvort sem það er svanurinn eða gamall spænskur hægindastóll þá færa þeir hlýju og karakter inn á heimilið.
Hér má líta átta myndir sem sýna bæði nýja og stílhreina stóla og eins aðeins notaðri stóla.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.