Ég er afar veik fyrir fallegum baðherbergjum og þessi hérna eru algjör lúxus. Ef ég ætti eitt svona heima hjá mér þá væri ég alltaf þar inni.
Kannski er þessi baðherbergis ástríða mín komin af því að mér leiðist að elda og spái því ekki mikið í t.d eldhúsum, þau mega vera hvernig sem er mín vegna en auðvitað snyrtileg. Mér finnst hinsvegar mun skemmtilegra að dekra við mig og slaka á inni á baði.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.