Fyrir nokkru sá ég myndir af fallegri íbúð hönnuðarins Alexander’s Wang sem staðsett er í NYC og ég gersamlega féll fyrir hversu snilldarlega hann blandar rokklegu útliti húsgagna á fágaðan hátt. Hvað finnst þér?
Meira um meistarann má lesa hér en myndirnar frá svefnherberginu eru úr portfolio bók innanhúshönnuðsins Ryan Korban.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.