Fyrir þá sem eru að reyna passa upp á matarræðið geta millimálin oft orðið flókin.
Vörur eins og Jólajógúrt virðist vera ósköp saklaust og sniðugt snarl en í raun gætiru allt eins troðið í þig 8 stk. af Maryland kexi.
Þess vegna er frábært að tileinka sér auðveldar og laufléttar uppskriftir af hollum millimálsbitum. Þannig náum við að halda blóðsykrinum niðri og góða skapinu uppi.
Chillað avakadó er einfaldlega:
- Lítið avokadó skorið í tvennt
- Sjávarsalt
- Pipar
- Sonnentor chilli-duft
- Lime skvetta
Chilli-duft er frábært að eiga, enda ótrúlega gott krydd í nánast allan mat. Vegna þess að hollur matur á að vera laus við aukaefni er bragðið ekki alltaf jafn sterkt og þegar varan er full af gerviefnum. Þess vegna er svo gott að nota chilli-duft til að djazza upp á bragðið.
Sjálf hef ég notað chilli-duft í allskonar marineringar, út á súpur, sætar kartöflur, í buff og meira að segja út á kotasælu.
Ekki stress – avokadó, chillaðu bara…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.