Hér er auðveld uppskrift af hveitikímklöttum sem eru virkilega góðir og einn skammtur gefur okkur mikla næringu.
Auðvelt er að elda í heilsugrilli eða á bökunarpappír á ofnplötu. Hægt að blanda kvöldinu áður, taka með sér og fá sér nýbakað á staðnum.
INNIHALD
- Hveitikím 30gr.
- Sesamfræ 1tsk
- Hörfræ 1tsk
- Sólblómafræ 1 tsk
- Smá kanill 1tsk eða það krydd sem þú vilt t.d. oregano
- Hægt er að velja hvaða fræ sem er
Smá vatn sett útí og hrært þangað til maukið er orðið eins og þykkur hafragrautur og smellt á plötu inní ofn í 10 mín á 180 gr. Læt svo fylgja hér með góðri uppskrift sem gæti hentað í morgunmat eða hádegisverð, súpergóð og súperholl….
Berjaeggjakaka með kotasælu fyrir einn
INNIHALD
- 2 egg
- 2 msk vatn
- salt og pipar
- 2 tsk góð olía
- 1/2 dl kotasæla
- 2 dl blönduð ber, s.s. jarðarber, bláber, hindber
AÐFERÐ
Léttþeytið eggin með gaffli og bætið vatni útí ásamt salti og pipar. Hitið smá olíu á pönnu og hellið eggjahrærunni út í. Steikið í nokkrar mín uns eggjakakan er orðin þykk en samt mjúk á yfirborðinu. Setjið kotasæluna og helminginn af berjunum á miðja eggjakökuna og brjótið hana saman. Hellið því sem eftir er af berjunum ofan á og berið strax fram.
Hvet ykkur til að vera dugleg að nota þessar hollu uppskriftir það gæti verið eitt af markmiðunm að prófa nýjar uppskriftir.
Guðbjörg er iþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands. Hún hefur verið í líkamsræktarbransanum frá því árið 1989. Alltaf tilbúin að taka að sér krefjandi verkefni. Haldið ýmis þjálfaranámskeið fyrir þolfimikennara og einkaþjálfara auk þess að vera stundakennari við HR íþróttafræði. Undanfarin 19 ár hefur hún starfað með Agústu Johnson en nú hefur hún stofnað sitt eigið fyrirtæki, G fit heilsurækt og elskar að taka þátt í vellíðan fólks og upplifa árangur í líkamsrækt. Guðbjörg á skilningsríkan eiginmann og þrjú yndisleg börn.