Flest viljum við eldast vel en fólk sem heldur í unglegt yfirbragð um leið og það ber með sér tign og glæsileika er alltaf aðlaðandi. Góð dæmi um þetta eru til dæmis leikararnir þau Jane Fonda (75) og Sean Connery (83) en hvort um sig er löngu komið á eftirlaunaaldurinn.
Erfðir og útlitsbætandi aðgerðir hafa auðvitað sín áhrif á það hvort fólk eldist vel eða ekki. Þó er lítið mál að fara offari í aðgerðum eða skemma það sem guð gaf með lélegu mataræði og óhóflegri áfengisneyslu svo eitthvað sé nefnt.
Lífstíllinn skiptir í raun mestu máli ef fólk vill halda í æskuljómann og þá eru það eftirfarandi atriði mikilvægust…
10. Hvíldu þig
Reyndu að forðast stress. Stress hefur mjög neikvæð og niðurbrjótandi áhrif. Exem og útbrot geta aukist á húðinni, þunglyndi, önuglyndi og aðrir kvillar verða meira áberandi ef þú nærð ekki að hvíla þig annað slagið. Prófaðu að fara út að ganga þó ekki sé nema í fimmtán mínútur í senn. Sestu niður með bók í tuttugu mínútur. Náðu daglegri slökun en forðastu að nota áfengi til þess því þar með býrðu til vítahring sem hefur snjóboltaáhrif til verri vegar.
9. Þú ert það sem þú borðar
Borðaðu ferskan mat. Ávexti, grænmeti, drekktu vatn og borðaðu ferskan fisk. Omega 3 fitusýrur (t.d. í laxi) hafa frábær áhrif á húðina og B og C vítamín gera húð, hári og nöglum gott. Ef þú ætlar að eldast fallega skaltu borða rétt. Leggðu svolítið á þig til að skipuleggja máltíðir og hafðu gosdrykki, sælgæti og brauðmeti í hófi.
8. Sláðu bjarma á brosið
Kaffidrykkja hefur þau áhrif að tennurnar gulna eða dökkna. Fallegt hvítt bros gerir þig unglegri og slíkt er hægt að öðlast nokkuð fyrirhafnarlaust. Tannhvítunarefni hafa þróast mjög á liðnum árum sem gerir þau auðveld og áhrifarík í notkun. Sláðu bjarma á brosið með heimsókn í apótekið, á snyrtistofu eða til tannlæknis.
7. Stundaðu líkamsrækt
Þetta er auðvitað í efsta sæti á “to do” listanum hjá mörgum en þó eru aðeins örfáir sem raunverulega stunda líkamsrækt reglulega. 30 mínútur á dag, þrisvar í viku gera stóran mun á heilsunni. Hvort sem þú ferð út að hlaupa, ganga eða í líkamsrækt. Blóðflæðið eykst og útlitið batnar.
6. Náðu þér í fullan nætursvefn
Svefn er afar mikilvægur bæði útlitinu og andlegri og líkamlegri heilsu. Ef þú vilt eldast vel skaltu passa upp á að sofa vel. Farðu snemma og oft í rúmið. Fyrr en þú ætlar þér.
5. Fjarlægðu líkamshár
Hár eiga ekkert með að vaxa á undarlegum stöðum þó þau séu byrjuð að þynnast á kollinum. Fjarlægðu hár úr nefi, eyrum og á milli augna ef þau vaxa úfin þar. Konur ættu að fara reglulega í plokkun eða vax hjá fagmanneskju sem þær treysta.
4. Notaðu réttu kremin
Notaðu krem sem inniheldur góðan raka. Þetta heldur húðinni teygjanlegri, fallegri og unglegri. Karlmenn ættu að nota góðar rakvélar og raksápur og ef þeir nota ekki þegar krem þá ættu þeir að byrja strax. Þrífðu líka húðina kvölds og morgna og notaðu kornamaska til að taka burtu dauða húð.
3. Klæddu þig í takt við aldurinn
Fólk á fertugs og fimmtugsaldri sem lítur út fyrir að versla í Englabörnum eða Kiss í Kringlunni er ekki smart þó það haldi það. Klæddu þig á þokkafullan hátt í takt við aldurinn. Veldu föt sem passa á þig og klæða vöxtinn. Unglegt útlit felst ekki í unglingslegum og glannalegum klæðaburði.
2. Ekki reykja
Fátt sem við gerum skaðar útlitið og heilsuna jafn mikið og reykingar. Ef þú ætlar að halda í hvorutveggja skaltu drepa í. Núna. Gular tennur, gulir fingur, hrukkur og andremma eru meðal þess sem reykingarfólkið uppsker.
1. Notaðu sólarvörn, – alltaf!
Áratugalangar rannsóknir vísindamanna hafa leitt í ljós að ekkert eldir húðina eins hratt og of mikið sólarljós. Hrukkur, litabreytingar og húðkrabbi eru meðal þess sem fólk uppsker af of miklum sólböðum. Notaðu sólarvörn með SPF 15 á hverjum degi en SPF 30 ef þú ætlar að vera mikið úti yfir daginn og forðastu ljósabekki með öllu. Alltaf!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.