Margar konur kannast við ertingu, kláða og jafnvel ólykt á kynfærasvæðinu enda candida sveppurinn algengt vandamál hjá mjög mörgum nútímakonum, ásamt öðru sem tengist okkar viðkvæmu bakteríuflóru.
Við þessu eru til einhverjar lausnir, bæði náttúru -og læknisfræðilegar en um daginn rakst ég á nýjung sem ég hafði ekki séð áður. Þetta eru góðar fréttir þar sem í raun er skortur á framboði af góðum vörum sem vinna á þessum vandamálum.
Um er að ræða tíðatappa sem innihalda gríðarlegt magn mjólkursýrugerla sem vinna hvað öflugast gegn ofangreindum vanda.
Ég leitaði að frekari upplýsingum um vöruna, sem heitir ELLEN, og komst að því að þessir tappar hafa reynst vel fyrir konur sem kannast við ofangreind vandamál. Hver tappi inniheldur um 100 milljónir mjólkursýrugerla sem bæta og styrkja eðlilega bakteríuflóru og viðhalda réttu pH-gildi í leggöngum.
Ellen tappar koma í þremur stærðum, eru einfaldir og þægilegir og veita sömu vörn og aðrir tíðatappar. Til að virkni þeirra sé sem mest er mikilvægt að nota rétta stærð eftir því hversu miklar blæðingar eru. Mælt er með því að nota þrjá tappa á dag (að minnsta kosti) á meðan blæðingum stendur en full virkni fer í gang eftir 90 mínútur.
Krem fyrir aðra daga
Einnig er hægt að fá sérstakt mjólkursýrugerlakrem frá sama framleiðanda en það virkar mjög vel eftir bæði rakstur og vaxmeðferð.
Kremið kemur í veg fyrir þurrk og veitir öfluga vörn gegn óæskilegum bakteríum. Það mýkir húðina og slímhúðina og viðheldur eðlilegri gerlaflóru. Það er jafnframt án ilm og rotvarnarefna og inniheldur ekkert estrógen eða vatn (eitt af því sem kvensjúkdómalæknar leggja mikla áherslu á).
Kremið má nota alla daga líkt og body lotion einnig samhliða töppunum og gott er að bera það á daglega eða eftir þörfum.
Ef þú ert kona sem notar tappa þegar þú ferð á blæðingar og kannast jafnframt við kláða, ertingu, ólykt eða álíka vandamál þá gæti þetta verið mjög góð lausn fyrir þig.
Um að gera að prófa!
Ellen vörurnar koma í skemmtilegum og vönduðum umbúðum og fást í flestum apótekum landsins. Hér er svo FB síða Ellen ef þú vilt senda spurningar eða annað.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.