Hallelúja! Ný rannsókn frá háskólanum í Tel-Aviv sannar að manni gangi betur að halda sig við rétt matarræði og léttast ef maður fær sér súkkulaðiköku í morgunmat!
Það er mörgum mjög erfitt að halda sér frá sætindum algjörlega og það getur skapað þráhyggju og fíkn í sætindi.
Besti tími dags til að borða sætindi er á morgnana þegar það getur verið partur af 600 kaloría morgunverði ásamt öðrum hollari prótín og kolvetnagjöfum. Svo hefur maður allan daginn til að brenna kaloríunum ásamt því að sæti morgunmaturinn slær á sætindalöngun seinna um daginn og gerir manni auðveldara að halda sig við hollustuna.
Mig er strax farið að dreyma um súkkulaðiköku með jarðaberjum, gróft brauð með Nutella og banönum og bláberjapönnsur með hlynsýropi og ferskum ávöxtum í morgunmat.
Súkkulaðiköku-kúr, Já takk!
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.