Vinsældir heilsudrykkja hafa aukist í sífellu undanfarin ár og er ég farin að leggja það í vana minn daglega að fá mér ávaxtahristing annað hvort í morgunmat eða um miðjan morgun.
Manni líður vel, verður endurnærður og kroppurinn fær þau vítamín, trefjar og andoxunarefni sem hann þarfnast.
Hér er uppskrift sem ég þróaði um daginn og finnst alveg þrælgóð! Þrátt fyrir að innihalda tölulvert magn hitaeininga er þetta verulega hollt og sniðugt að drekka snemma dags:
ÞETTA ÞARFTU
- 1/2 banani
- 1/2 pera
- 1/4 appelsína
- 50 g gul melóna
- 1/2 bolli blönduð, frosin ber
- Sirka 2 dl hrísmjólk (eða möndlumjólk. Magn og tegund fer eftir smekk)
- 2 msk haframjöl
Allt skorið í bita og skellt á fullan þeyting í blandara. Það er hægt að nota klaka með en mér finnst frosnu berin nægja til að kæla drykkinn. Drukkið með bestu lyst fyrir heilbrigðan kropp og fullt, fullt af orku!
PS…
Hægt er að blanda þeim tegundum af ávöxtum saman sem þú vilt og jafnvel skella 1 msk af kókosolíu eða 1 tsk af hunangi með í blandarann. Notaðu ímyndunaraflið og búðu þér til þinn uppáhalds Smoothie!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com