Magnesium hefur verið kallað “the miracle mineral” og “the spark of life” og þetta bætiefni er mjög nauðsynlegt fyrir okkur öll.
Það er gott fyrir heilbrigði beina og einnig mjög gott fyrir hjartað en því miður er oft litið framhjá þessu efni þegar hugað er að heilsunni.
Hvað gerir Magnesíum fyrir okkur?
- Það er gott fyrir æðar og vöðva.
- Byggir upp og styrkir bein.
- Gerir hringrás blóðsins auðveldari.
- Hjálpar okkur að sofa, ná tökum á stressi og hjálpar geðheilsunni t.d gegn þunglyndi og bætir tilfinningalegan stöðugleika.
- Nauðsynlegt fyrir þrek/þol hjá íþróttafólki.
Hver eru merki þess að Magnesíum skortur sé í líkamanum hjá þér?
- Þróttleysi í vöðvum, skjálfti eða krampar.
- Óreglulegur hjartsláttur t.d aukinn hjartsláttur.
- Veikari bein.
- Höfuðverkur.
- Hár blóðþrýstingur.
- Erfitt með svefn.
Hvað er hægt að gera þegar líkamann skortir Magnesíum?
Best er auðvitað að hafa mataræðið þannig að það innihaldi daglegan skammt af Magnesíum. En of margir borða of mikið af mat sem er fyrirfram unninn. Þá er voða lítið eftir af þessum nauðsynlegu vítamínum og steinefnum sem líkaminn þarf til að vera heilbrigður. Ofeldun á mat og algengar meltingatruflanir koma í veg fyrir að líkaminn nái að vinna magnesíum eingöngu í gegnum fæðið.
Best er að borða spínat. Einnig eru brokkólí, gúrka, grænar baunir, sellerí og allskyns fræ eins og td. Sólblómafræ, sesamfræ og hörfræ rík af magnesíum.
Það má líka alltaf taka Magnesíum í töfluformi. Auðvitað er frekar mælt með því að ná því inn með mat en það er ekki alltaf hægt.
Ég hef tekið magnesísum í rúmlega tvö ár í töflu formi og einnig í duft formi sem er uppleysanlegt í vatni og ég finn mikin mun á sjálfri mér. Andlega og líkamlega. Hefði bara hreinlega ekki trúað því að þetta efni væri líkamanum svona mikilvægt ef ég hefði ekki reynt það sjálf.
Mæli með að fólk athugi hvort það sé að fá nóg af Magnesíum úr sínum mat og ef ekki þá er Heilsuhúsið með mikið úrval af Magnesíum bæði í töflu formi og duft formi til inntöku.
Með Magnesíum er betra að velja dýrari gerðina heldur en að fara og reyna að spara nokkrar krónur. Á heilsunni er ekki verðmiði.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.