Leggöngin eru afar viðkvæmt vistkerfi. Með svona viðkæmt vistkerfi þarf að hugsa afar vel um það og bera mikla virðingu fyrir því.
Við konur þurfum að vera okkar eigin “national wildlife service”. Enginn annar er við sjálfar hugsum um hina viðkvæmu flóru og aðstæður í okkar buxum. Það er alfarið undir okkur sjálfum komið hvernig heilsan þarna niðri er.
Hérna að neðan (no pun intended) er flottur listi yfir mat sem að vinnur með þínum leggöngum, eða stuðlar að því að flóran þar sé í góðu jafnvægi og ph gildin rétt.
1. Jógúrt
Jógúrt er ekki bara góð fyrir magann. Jógúrt inniheldur gerla sem hjálpa til við að það sé rétt jafnvægi á viðkvæma svæðinu okkar og það sama má segja um AB mjólkina.
2. Matur sem er hár í Phyto-estrogeni
Eins og t.d hörfræ og hörfræolía, epli og sellerí ásamt mörgu öðru. Mataræði sem er ríkt af þessu mun svo sannarlega passa upp á að leggöngin verði náttúrulega rök.
3. C vítamín
Allt sem er ríkt af C vítamíni vinnur með ónæmiskerfinu og þar af leiðandi einnig með þínum leggöngum.
4. Hvítlaukur
Í menntaskóla þekkti ég stelpu sem setti hvítlauksgeira beint inn til að lækna sveppasýkinguna. Það má einnig borða nokkra hvítlauks geira yfir daginn ef þig grunar að þú sért með sveppasýkingu.
5. Trönuberjadjús
Náttúrulegur og án sætuefna. Annað sem er algjör legganga klassík. Þekkt fyrir að bjarga málunum, t.d þegar kemur að þvagfærasýkingu og öðru sem tengist þvagrásinni.
6. Sykur í hófi
Svo auðvitað að passa upp á sykurátið. Sykur er pest fyrir náttúrlega flóru í leggöngum og fer illa með líkamsstarfsemina alla sé hans neytt í of miklu magni.
Að auki er hægt að nota fínustu vörur eins og VIVAG og nú síðast ELLEN tíðatappana til að halda flórunni í góðu jafnvægi og komast hjá hverskonar ólykt og veseni.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.