Það er margsannað að jurtir geta gert bæði líkama og sál gott. Við mælum með jurtabaði.
- Helltu upp á sterkt te með engifer og/eða myntu.
- Láttu renna í heitt bað.
- Helltu svo tveimur bollum af te-inu ofan í baðið.
- Náðu góðri slökun í baðinu.
Vertu með tilbúið stórt og mjúkt handklæði til að nota eftir baðið og berðu svo á þig gott “body-lotion”. Það getur verið gott að fara í slakandi bað af og til og ná úr sér öllu stressi. Hugsa um allt annað en vinnu, vond samskipti og annað sem veldur streitu.
Hugsaðu um eitthvað sem lætur þér líða vel.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.