Sveppasýking. Ótrúlega hvimleitt og pirrandi vandamál sem hrjáir ótal margar konur á öllum aldri!
Hvað er hægt að gera?
Jú, ráðin eru endalaust mörg en ekki öll jafn öflug og sum kosta hellings tíma og fyrirhöfn.
Ég er ein af þeim sem er alltaf að berjast við þennan fjanda af og til og það er þvílíkt hvað ég hef eytt miklum peningum í Pevaryl, Vivag, Diflucan og önnur lyf við þessum sjúkdómi sem er ekki einu sinni skilgreindur sem sjúkdómur, – þó hann ætti kannski að vera það.
Það var ekki fyrr en núna nýlega sem ég ákvað að fara ‘alternativu’ leiðina og prófaði svolítið sem ég hafði löngu heyrt um en aldrei látið verða af.
Það er líka eitthvað svo furðulegt við það að láta túrtappa ofan í glas af AB mjólk og smella honum svo inn. En veistu hvað… þetta svínvirkar!
Þú kaupir bara venjulega tappa (helst úr lífrænni bómull, ekki í hylki) og AB mjólk. Lætur tappann soga í sig AB mjólk í nokkra tíma inni í ísskáp og stingur honum svo inn yfir nótt.
Þú getur líka haft hann yfir dag í nokkra tíma í senn en það er betra að gera þetta liggjandi. Þú veist af hverju.
Sýruáhrifin af AB mjólkinni koma til með að jafna sýrustigið í leggöngunum þínum og þér líður STRAX betur eftir eina meðferð. Endurtaktu þetta í nokkra daga og passaðu þig að drekka nóg af AB mjólk líka. Það er fínt að setja hana bara í stórt glas, þynna örlítið út með köldu vatni og skella svo í sig.
Annað ráð er kókosolían sem virðist stundum allra meina bót.
Taktu bút, sirka sentimeter, af kaldri kókosolíu sem hefur verið inni í ísskáp og skelltu þarna upp yfir nóttina. Notaðu innlegg því olían bráðnar auðvitað.
Þetta mun líka láta þér líða betur en er þó ekki jafn öflug aðferð til að LOSNA við sveppinn og AB mjólkin. Kókosolían gerir þetta bara allt þægilegra.
Það eru líka sveppadrepandi efni í kókosolíunni svo hún getur líka virkað sem frábært sleipiefni, fyrir utan það hvað það er góð lykt af henni.
Kókosolían róar húðina og græðir ef það eru roði og sprungur í henni. Hún dregur líka úr bólgum. Best er að nota hana strax eftir eða með AB mjólkur meðferðinni.
Prófaðu þetta og deildu þessum ráðum með vinkonum þínum sem kannast við vandann. Konur eru konum bestar.
Love, Bella B
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.