Flest sem byrja á því að drekka grænt te, minnka kaffi- og gosdrykkju til muna í kjölfarið.
Þú getur nefnilega gert gott sódavatn úr grænu te með því að að kæla það niður og blanda sódavatni út í og þú færð ferskan og hressandi svaladrykk.
Það eru margar góðar ástæður fyrir því að drekka grænt te. Meðal annars inniheldur það mikið magn andoxunarefna sem veitir góða vörn gegn bakteríusýkingum. Það stuðlar að styrk liðamóta og styrkir beinin. Það dregur einnig úr bólgum sem er mjög jákvætt. Lækkar kólesteról og eykur efnaskiptahraðann sem er eftirsóknarvert til að auka brennsluna okkar!
Og hvaða græna te er nú best ?
Í heilsuhúsum er til gott úrval en svo fæst líka mjög vinsælt grænt te í öllum helstu matvöruverslunum sem heitir Actigreen. Það er alveg þess virði að prófa og sjá hvort þú finnir einhvern mun á þér ef þú ert orkulaus og þarft að láta hressa þig við.
Þessi drykkur er frábærlega góður og þú færð bæði orku og finnur fyrir vatnslosandi áhrifum
Spínat-kókosdrykkur
- 250 ml kókosvatn
- 1 lófi spínat
- 1 ferskur myntustöngull
- 1 grænt te, duft frá Akti green, fæst í öllum matvörubúðum
- 2-3 cm engifer
Kreista 1/2 sítrónu eða lime út í- Klaki og allt í blandara, hrikalega fersk og gott!
Bestu kveðjur,
Guðbjörg Finnsdóttir – G-Fit Heilsurækt.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.