Einkaþjálfarinn Andrew Dixon vaknaði einn daginn og leið eins og hann væri svolítið feitari en vanalega eða „bloated“ eins og það heitir á enskunni.
Hann bað konuna sína um að taka af sér svona „fyrir“ mynd en þarna er hann rétt rúmlega 83 kíló og með 16% fitu. Svo stökk hann inn á baðherbergi, rakaði af sér líkams og höfuð hár, gerði nokkrar armbeygjur og kviðæfingar, stillti ljósin í svefnherberginu upp á nýtt og konan smellti af. Útkomuna má sjá á myndinni hér fyrir ofan.
„Þannig að þið getið gleymt öllu þessu rugli um að detta í fullkomið form á örfáum vikum,“ segir hann. „Einbeitið ykkur að því að finna jafnvægi í lífinu, passa að verða ekki of stressuð, sofa vel á nóttunni og hreyfa ykkur nóg.“
Síðar gerði hann aðra svona seríu. Á þessum myndum er hann ögn þyngri og með meiri vöðvamassa en útkoman er svipuð. Látum ekki kjánalegar auglýsingar plata okkur. Lifum lífinu í jafnvægi.
Þú getur smellt á myndina til að stækka.

Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.