Það að taka sér fegrunarblund er þekkt hugtak, en ætli það sé eitthvað til í því að svefninn geti í raun fegrað mann?
Nýleg rannsókn leiddi í ljós að þau sem sváfu illa að staðaldri voru hrukkóttari og litu út fyrir að vera eldri en jafnaldrar þeirra sem sváfu vel. Samkvæmt rannsókninni veldur lélegur svefn því að húðin er ver varin gegn óæskilegum umhverfisáhrifum eins og sterkri sól og loftmengun.
Svefnlausu þátttakendurnir voru einnig líklegri til þess að þjást af offitu og sjálfsmynd þeirra var mun verri en hjá þeim sem sváfu vel.
Önnur rannsókn sem fór þannig fram að tvær myndir voru teknar af hverjum þátttakanda, ein eftir 8 klukkustunda svefn og hin eftir 5 klukkustunda svefn í kjölfar 30 klukkustunda vöku.
Myndirnar voru bornar undir áháða aðila sem vissu ekki hvor myndin var eftir góðan svefn og hvor eftir stuttan. Í ljós kom að eftir stuttan svefn þóttu þátttakendurnir veiklulegri, minna aðlagandi og þreytulegri en eftir góðan nætursvefn.
Það er löngu staðfest að langvarandi svefnskortur getur haft gríðarlega neikvæð áhrif á heilsufar almennt en þessar niðurstöður benda til þess að jafnvel ein nótt af slæmum svefni geti valdið því að fólk er metið minna aðlagandi. Það er því með sanni hægt að segja að fegrunarblundurinn sé engin mýta !
Til gamans má hér að ofan sjá nokkrar stjörnur sem hafa sagt frá því að fegrunarblundurinn sé fastur liður í þeirra rútínu.
Ef þú átt við langvarandi svefnvandamál að stríða og vilt bæta svefninn, auka orku og líta betur út er gott að athuga hjá þínum lækni hvort að svefnmeðferð sé viðeigandi. Þetta á sérstaklega við ef þú finnur einnig fyrir syfju og þreytu yfir daginn.
Þú getur einnig svarað spurningalista á Betri svefn til að athuga hvort meðferð henti þér.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.