Þetta myrkur er alveg að fara með mig og ekkert sem mig langar frekar en að hanga á sólarströnd með regnhlífakokkteil og öldugjálfur eða eyða helginni í hlýrri stórborg þar sem ekki nokkur lifandi sála er íklædd úlpu.
Mér er nokk sama hvar í heiminum þetta yrði og hver er besta leiðin til að láta þennan draum rætast? Hérna.
Mér finnst líka bara gaman að vafra um síðuna, skoða möguleikana á að fljúga á staði sem mér myndi ekki detta í hug að leita að sjálfri, finna bestu verðin og skoða allar flottu ferðamyndirnar.
Hvernig hljómar til dæmis 20°C hiti í Nice í Frakklandi fyrir 55þús? ó já!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.