Það getur verið erfitt að fara á æfingu, sérstaklega ef hún er eldsnemma á morgnana. Það er auðvelt að snúa sér á hliðina og hugsa um hversu seint þú fórst að sofa í gær. Finna fyrir svefnsveltu…
…eða vakna allt of þreytt og geta ekki hugsað sér að byrja hreyfa sig strax. Heyra í veðrinu úti sem býður ekki upp á það að setjast beint upp í bílinn eða heyra sjálfa þig einfaldlega segja ÉG NENNI EKKI.
Þessi barátta er oftast við okkur sjálf og við viljum vinna hana. Við erum ánægð þegar við erum komin á æfingu og eins gott að koma með rétt rök hvers vegna við erum að þessu. Púkinn á öxlinni fær ekki að ráða!! Við vitum öll hve hreyfing er nauðsynleg fyrir heilsuna en stundum ræður annað för. Það er gott motto sem segir:
Ég geri það sem ég þarf fyrir það sem ég vil geta gert.
Ég vil vera heilsuhraust og lifa vel. Mig langar að líða vel og vera ánægð með sjálfa mig. Ég finn hvað hreyfing og holltmataræði lætur mér líða vel . Ég vil geta notið þess að lifa lífinu lifandi með fjölskyldu minni og jafnvel hlaupið 5 km þegar ég er níræð. Ég vil ekki þurfa hugsa seinna meir að ég hefði átt að hugsa betur um sjálfa mig.
Við lendum oft í baráttu við okkur sjálf og jafnvel keppnismaðurinn, þjálfarinn og fleiri sem stunda hreyfingu allt árið. Við erum öll í þessu saman en EKKI GEFAST UPP.
“Just do it” og við munum uppskera árangur, vellíðan, góða heilsu og góða samvisku gagnvart okkur sjálfum!
Guðbjörg er iþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands. Hún hefur verið í líkamsræktarbransanum frá því árið 1989. Alltaf tilbúin að taka að sér krefjandi verkefni. Haldið ýmis þjálfaranámskeið fyrir þolfimikennara og einkaþjálfara auk þess að vera stundakennari við HR íþróttafræði. Undanfarin 19 ár hefur hún starfað með Agústu Johnson en nú hefur hún stofnað sitt eigið fyrirtæki, G fit heilsurækt og elskar að taka þátt í vellíðan fólks og upplifa árangur í líkamsrækt. Guðbjörg á skilningsríkan eiginmann og þrjú yndisleg börn.