Nupo Létt. Ótrúlega mikið 80’s eitthvað en alveg jafn gagnlegt eftir öll þessi ár.
Nupo létt kom á markað í Danmörku 1981 og barst eins og eldur um sinu á Íslandi. Þetta var fyrir Herbalife æðið og bara selt í venjulegum verslunum. Þarna var undralausnin komin, fólk sem vildi grenna sig keypti Nupo létt og fékk sér í staðinn fyrir hitaeiningaríkar máltíðir.
Íslenskar konur tóku Nupo létt fagnandi en síðustu ár finnst mér þessi fína vara hafa falist svolítið. Mögulega vegna þess að hinir og þessir einkaþjálfarar eru orðnir sjálfsskipaðir markaðsstjórar fæðubótaefna á Íslandi í dag (*ahemm) og kúnnar þeirra kaupa bara það sem þeim er sagt.
Fyrir áramót ákvað ég að skafa af mér einhver kílógrömm til að passa betur í gallabuxurnar.
Mér hefur alltaf þótt frekar þægilegt að nota svona hina og þessa drykki til að auðvelda þann leik og í þetta skipti mundi ég eftir Nupo! Stökk út og keypti ég mér Nupo Létt með súkkulaðibragði í Hagkaup.
Þetta er kassi með 12 bréfum en í hverju bréfi er ein máltíð og hver máltíð er úthugsuð með öllum næringarefnum í um 110 hitaeiningum.
Nupo er danskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í að framleiða megrunarvörur en þú getur líka fengið orkustangir og súpur frá Nupo. Sjálf hef ég prófað Thailenska kjúklingasúpu sem er sterk og góð og grænmetissúpu. Nu-po stendur fyrir Nutritional Powder og var þróað á Hvidovre spítalanum af Dr. Flemming Quaade í samvinnu við Oluf Mørch A/S sem kom nafninu Nupo á kortið.
Síðan vörurnar komu fyrst á markað fyrir meira en 30 árum hafa þær farið í gegnum meira en 50 klínískar rannsóknir og gefið mjög góðan árangur í þyngdarstjórnun.
Hvað minn árangur varðar þá kom hann mjög fljótt þegar ég skipti ristuðu brauði með osti, eða flatkökum út í staðinn fyrir Nupo sjeika. Ég prófaði alveg fullt af bragðtegundum en mér finnst súkkulaði og Thai súpan eiginlega bestar. Það er líka hægt að fá mangó og vanillubragð og blönduð ber en mér finnst stundum gott að setja þá út í smoothies til að fá próteinríkari og meira seðjandi máltíð.
Ef þú nennir ekki að ganga í Herbalife söfnuðinn og langar bara að missa nokkur kíló þá mæli ég með Nupo. Þú ættir að finna kassann í næstu búð og athugaðu að þú getur tekið þetta með þér í vinnunna og notað sem millimáltíðir.
Fyrir fólk á 5:2 ætti Nupo að vera frábær lausn á 2 dögunum því þú veist upp á hár hvað þú ert að borða margar hitaeiningar og það ættu flestir að verða þokkalega saddir af einum Nupo drykk. Vert er að benda á að Nupo hefur um árabil verið notað af næringarfræðingum, læknum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum í Danmörku sem leið til að yfirvinna offitu enda upphaflega þróað sem slíkt.
Þetta er einföld og þægileg leið sem ég mæli með sem stuðningi þegar þér liggur á að missa nokkur auka kg.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.