Nýjasta líkamsræktaræðið í Bretlandi og Bandaríkjunum gengur út á stelpur koma saman snemma kvölds á næturklúbbi og dansa þar til svitinn byrjar að leka…
Konseptið hefur fengið nafnið Dance Dance Party Party (skammstafað DDPP) en það byrjar klukkan 7.30 á laugardagskvöldi og reglurnar eru einfaldar:
- Ekkert áfengi
- Engin samtöl
- Enga dómhörku
- Enga stráka
Þetta hljómar kannski vandræðalega en eftir að hafa lesið reynslusögu blaðakonu á The Guardian finnst mér þetta snilldarhugmynd.
Þú mætir á svæðið í æfingargallanum og mátt ekkert tala. Úr hátölurunum kemur brjálæðingslega fín danstónlist, allt frá Florence and the Machine yfir í Paul Simon og Chemical Brothers og þú hlýtur að byrja bara að dilla þér og hægt og rólega í takti sem svo þróast út í útrásarkenndan dans sem brennir helling af hitaeiningum – án þess að þú takir eftir því!
Það er ekki skrítið að þetta sé orðið æði í ótal borgum heims t.d. New York, Toronto, Chicago, Austin, Vancover og nú síðast London. Allir geta í raun opnað svona stað, það þarf bara að fara eftir reglunum.
Dans er ekki bara heilsusamlegur fyrir líkamann og örvar brennslukerfið verulega heldur hefur hann mjög góð áhrif á sálarlífið. Það er frábær andleg útrás sem er fólgin í því að dansa duglega. Að sjálfssögðu hlýtur líka að vera rosalega þægilegt að mæta á dansiballið í strigaskóm með vatnsbrúsa, viss um að fá frið frá einum súrum með snúið bindi og glas í hönd á dansgólfinu.
Ég hafði persónulega mjög gaman af því að reifa á síðasta áratug síðustu aldar og held að svona heilsurækt væri æðisleg viðbót við það sem er að gerast í líkamsræktarmálum á Íslandi. Það er klárt mál að ég myndi prófa að mæta í Smiley bol!
Ertu með?
Lestu meira um Dance Dance Party Party HÉR og lýsingar bresku blaðakonunnar HÉR.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.