Flest viljum við að árangurinn gerist strax eða helst í gær en það er sama hvaða loforð eru gefin með ákveðnum matarkúr missir þú ákveðið mörg kiló þá er það ekki lausnin.
Rannsóknir sýna að þeir sem fara eftir stífu matarprógrammi og missa 5-10% af líkamsþyngd sinni fá flestir hana aftur til baka innan árs og jafnvel bætast við fleiri aukakíló.
Það er ekki hvetjandi að horfa uppá erfiða vinnu fara í vaskinn og vera á byrjunarreit aftur eftir nokkra mánuði. Það þarf samt ekkert að örvænta, það eru til árangurríkar leiðir sem hjálpa þér til að ná varanlegum árangri. Lykilinn að því er að undirbúa sig vel áður og fara vel yfir nokkur atriði.
Farðu yfir þessi sjö atriði og og það ætti að hjálpa þér við undirbúninginn.
1. Hugleiddu vel hvaða breyting verður á líðan þinni við að komast í gott form.
Ekki hugsa of mikið um hvað vigtin segir. Hvaða nýju breytingar þarft þú að gera og hvaða breyting verður á lífstíl þínum ? Hvað gerir þessi breyting fyrir þig ? Hvaða tilfinningu færðu þegar þú hugsar um að vera sterk og í góðu formi ? Hugsaðu vel um þessa nýju sýn og hvað hún gerir mikið fyrir þig.
2. Settu markmiðin þín niður á blað
Skrifaðu markmiðin niðu rog hafðu þau raunhæf. Hafðu þau sýnileg fyrir þér og þínum og minntu þig á hvað þú ætlar þér.
3. Láttu tímann vinna með þér
Sama hversu mikinn sannfæringarkraft þú hefur í byrjun þá er alltaf einhver púki fyrir aftan sem segir þér að þér á eftir að mistakast, sérstaklega þegar þér finnst ekki ganga eins vel og í upphafi. Ekki horfa á stóru myndina í lokin, taktu lítil skref að stóra markmiðinu og leyfðu tímanum að vinna með þér.
4. Það er alltaf hægt að æfa
Það eru engar afsakanir til. Þú getur alltaf unnið afsakanir. Ef þú t.d. kemst ekki á æfingu þá þarf ekki mikinn búnað til að gera æfingu heima. Þú færð einfaldlega góðar æfingar hjá þjálfara þínum sem setur upp prógram fyrir þig. Æfingin þarf ekki að taka langan tíma, 20-30 mín á dag duga vel til þess að ná árangri. Matarboð og veislur eru til staðar allan ársins hring og þú hefur alltaf val hvað þú setur mikið ofan í þig ??
5. Vertu eigin herra en hvatning er góð
Stuðningur er mikils virði. Ef þú ert í hópi sem hefur sama markmið og þú, færðu góða hvatningu. Góður æfingafélagi hjálpar líka alltaf mikið en passaðu þig samt á því að vera þinn eigin herra í þessu. Lestu vel hvatningarpósta og þannig heldur þú sannfæringakrafti þínum.
6. Taktu til í skápunum
Taktu til heima hjá þér. Er eitthvað sem á ekki að vera til í skápunum þínum ? Nú er að henda óhollustunni út og bæta við hollustunni. Við vitum flest hvað þarf að gera. Fáðu upplýsingar hjá þjálfara ef þú ert ekki alveg viss. Með hollustuna í eldhúsinu færðu rétta andrúmsloftið. Reyndu líka að koma fjölskyldumeðlimunum í lið með þér.
7. Hvernig ætlar þú að fara að þessu?
Nú ertu komin vel af stað og þá er að ákveða hvaða plan hentar þér best. Ætlar þú að fylla út matardagbók ? Ertu með matarprógram til að hafa til hliðsjónar ? Er nóg að sleppa sætindum og sykri fyrir þig ? Það dásamlega er að þú velur hvað hentar þér best. Það er ekki til matarplan sem hentar öllum. Þegar kemur að því að ná þyngd sinni niður þá passar það sama alls ekki fyrir alla !
Hér er tveggja vikna matarplan sem gott er að hafa til hliðsjónar, hér færðu mikið af uppskriftum sem koma sér vel fyrir alla fjölskylduna: Græni matseðillinn-2 vikur
Gangi þér vel!
Kær kveðja,
Guðbjörg Finnsdóttir G- Fit Heilsurækt
Guðbjörg er iþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands. Hún hefur verið í líkamsræktarbransanum frá því árið 1989. Alltaf tilbúin að taka að sér krefjandi verkefni. Haldið ýmis þjálfaranámskeið fyrir þolfimikennara og einkaþjálfara auk þess að vera stundakennari við HR íþróttafræði. Undanfarin 19 ár hefur hún starfað með Agústu Johnson en nú hefur hún stofnað sitt eigið fyrirtæki, G fit heilsurækt og elskar að taka þátt í vellíðan fólks og upplifa árangur í líkamsrækt. Guðbjörg á skilningsríkan eiginmann og þrjú yndisleg börn.