Páskarnir mættir og þá getur verið freistandi að gleyma hreyfingunni og hollustunni í mataræði en athugaðu að við njótum frídaganna miklu betur með því að dekra vð okkur í hreyfingu og hafa hugann við hollt mataræði. Og ef þú ert búin að vera á beinu brautinni upp á síðkastið til að reyna að koma þér í betra form þá er nú um að gera að láta ekki árangurinn tapa fyrir páskaeggjum og feitum sósum. Það er svo fúlt eftir á.
Þessi góðu ráð koma frá uppáhalds þjálfaranum okkar henni Guðbjörgu Finns.
1. Ekki hætta að hreyfa þig
40 mín hreyfing á dag, getur bæði verið utandyra eða æfingar sem við getum auðveldlega gert á gólfinu heima hjá okkur.
2. Hafragrauturinn skorar
Fá sér hollan morgunmat, hafragrautur skorar 100% í hollustunni. Svo má reyndar geta þess að svart kaffi og sódavatn draga verulega úr matarlystinni ef þú ert að reyna að fasta fyrir hádegi.
3. Ekki verða svaka svöng eða svaka södd
Fá sér gott að borða en passa skammtastærðina, minna magn gefur miklu betra bragð en allt of mikið. Finna tilfinningu fyrir hversu södd eða svöng við erum: mjög svöng – svöng – södd – mjög södd – pakksödd. Við viljum bara fara á milli svöng og södd
4. Suðusúkkulaði
Velja sér páskegg úr suðusúkkulaði, hella upp á gott kaffi/te og njóta hvers bita og eiga 300 gr páskegg í 3-4 daga.
5. Eldhúsið lokar klukkan átta
Eftir kl. 20:00 þá er best að loka eldhúsinu og gott ráð er að bursta tennurnar.
6. Hvíldu þig
Ná að hvíla sig vel og fara fyrir miðnætti að sofa, á frídögum er gott að ná 8-9 tíma svefn og vinna þannig upp orkuna.
Förum eftir þessu og höfum góða samvisku gagnvart líkamanum yfir hátíðarnar
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.