Allt sem við gerum brennur hitaeiningum – anda, sofa, standa og allt það sem þú framkvæmir. En hvað þarf til að brenna 100 hitaeiningum ?
Þú verður hissa hvað þarf lítið og eins hve mikið það þarf til að ná því marki. Til að einfalda hlutina þá er gaman að skoða þennan lista með mismunandi leiðum. Allt frá æfingum og í daglegar athafnir. Er eitthvað sem kemur þér á óvart 😉
Við verðum að hafa í huga að allt fer þetta eftir því hve mikið við vinnum að hámarkshjartslætti okkar. Hreyfing á 60-80% af hámarkshjartslætti gefur góðan árangur en öll hreyfing hefur bætt áhrif á heilsuna og þú brennir extra hitaeiningum. Það að leggja bílnum lengra frá er að vera meðvitaður um að ná aukahreyfingu J
Því minna sem við sitjum því betra 😉
Æfingar:
- Þægilegur hjólatúr: 23 mín
- Þolfimileikfimi: 15 mín
- Skíðavél: 8 mín
- Sippa á meðalhraða: 9 mín
- Lyfta lóðum í tíma: 15 mín
- Pilates: 24 mín
- Róðravél: 13 mín
- Hlaupa upp stiga: 6 mín
- Hlaupa (30-35 mín með 5 km): 9 mín
- Synda á meðalhraða: 15 mín á meðalhraða
- Ganga stiga: 11 mín
- Ganga (60-70 mín með 5 km): 20 min
- Vatnsleikfimi: 23 mín
- Jóga: 20 mín
- Zumba dans: 11 mín
Íþróttir:
- Körfuskot: 20 mín
- Keila: 30 mín
- Dansa í kringum heima hjá sér: 20 mín
- Pílukast: 35 mín
- Gólf með pokann: 15 mín
- Skautar á meðalhraða: 18 mín
- Minigolf: 30 mín
- Frisbí leikur: 30 mín
- Spila fótbolta á meðalhraða: 13 mín
- Skíða niður brekkur: 10 mín
- Skotbolti: 18 mín
- Tennis: 20 mín
Ýmis heimavinna:
- Þvo bílinn: 20 mín
- Moka snjó: 15 mín
- Halda á smábarni: 24 mín
- Þrífa og ryksuga: 22 mín
- Elda: 34 mín
- Vaska upp: 40 mín
- Moppa gólf: 20 mín
- Leika við börnin: 23 mín
- Færa til húsgögn: 14 mín
- Kaupa inn: 38 mín
- Ganga úti með hundinn: 26 mín
Guðbjörg er iþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands. Hún hefur verið í líkamsræktarbransanum frá því árið 1989. Alltaf tilbúin að taka að sér krefjandi verkefni. Haldið ýmis þjálfaranámskeið fyrir þolfimikennara og einkaþjálfara auk þess að vera stundakennari við HR íþróttafræði. Undanfarin 19 ár hefur hún starfað með Agústu Johnson en nú hefur hún stofnað sitt eigið fyrirtæki, G fit heilsurækt og elskar að taka þátt í vellíðan fólks og upplifa árangur í líkamsrækt. Guðbjörg á skilningsríkan eiginmann og þrjú yndisleg börn.