Það er betra að setja sér lítil markmið og ná þeim en stór sem maður gefst fljótt upp á.
Hér eru fimm einföld markmið sem gaman er að setja sér fyrir vikuna framundan, – þessi henta mjög mörgum. Sjáðu hvort þú getir gert þetta dagleag fram á næsta mánudag.
- Borða reglulega og hafa millimálin holl og góð.
- Fara snemma að sofa og fá nægilega hvíld.
- Muna eftir vatninu og rifja upp eftir daginn, hvað magnið var mikið.
- Sleppa gosi.
- Hreyfing á hverjum degi, allt telst til, hlaupa upp stigann í vinnunni og jafnvel aukaæfingar heima s.s. kvið-og bakæfingar.
Gangi þér vel!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.