Borðar þú nóg af grænmeti og ávöxtum hvern dag? Líklegt er að svarið sé því miður ekki jákvætt.
Samkvæmt Landlækni eigum við að borða að lágmarki 500gr af grænmeti og ávöxtum á dag, að minnsta kosti 200gr af hvoru.
Það eru hreinar línur að Íslendingar eru margir hverjir ekki að ná að fylla þennan grasafæðiskvóta sinn hvern dag. Hér eru 20 leiðir sem ég nota til þess að ná inn mínum kvóta:
- Epli, peru– eða bananabitar, rúsínur og alls konar ber út á hafragrautinn eða jógúrtið
- Ávöxtur er fljótlegt millimál og auðvelt er að grípa til dæmis epli, appelsínu eða banana með sér þegar maður hleypur út úr húsi
- Hrökkbrauð er rosalega gott með osti og niðurskornum tómatsneiðum eða gúrkusneiðum
- Melónur eða mangó er hægt að skera niður í bita og setja í box til að taka með sér að heiman
- Kiwi er auðvelt að taka með sér
- Það er hægt að búa til allskonar boost með annaðhvort ávöxtum eða grænmeti sem uppistöðu, til dæmis boost með skyri, jarðaberjum, bönunum og bláberjum eða boost með appelsínusafa, spínati, appelsínu og engiferi
- Döðlur er hægt að kaupa í pokum til að grípa í ef svengd sækir að
- Þurrkaðir ávextir eru tilvaldir til snæðings í staðinn fyrir nammi
- Eplaskífur eru rosalega góðar með möndlu- eða hnetusmjöri
- Baunaspírur er auðvelt að grípa með sér og maula
- Í afmælum eða annarskonar boðum er sniðugt að sneiða niður paprikur,gúrkur, brokkolí, blómkál og sellerí og bjóða upp á með ídýfu eða sýrðum rjóma
- Bláber eru full af næringar- og andoxunarefnum og er gott að setja þau í boost, út á hafragraut, AB mjólkina eða borða eintóm
- Gulrætur er auðvelt að taka með sér og gott að nasla milli mála
- Litlir tómatar eru mikið nammi og gaman að grípa í þegar maður er við tölvuna, sjónvarpið eða bókina og vantar eitthvað að maula
- Jarðaber, vínber og aðrar gerðir af berjum eru frábært snarl með bíómyndinni á kvöldin
- Grænmeti með hádegismatnum, niðurskornir tómatar, laukur, gúrkubitar, paprika,brokkolí, steiktir sveppir, salat
- Gott er að gera sér brauð í grilli með osti og aspas, eða steikja hann og hafa sem meðlæti með fiski eða steik
- Kúrbítur (zucchini) er tiltölulega bragðlaus og gæti hentað þeim sem eru ekki hrifnir af grænmeti að steikja nokkra bita af því sem meðlæti með mat
- Niðursneiddar eggaldinsneiðar eru mjög góðar steiktar á pönnu með salti og svolitlum pipar
- Avocado er sérlega hollt og gott, auðvelt að brytja það niður í salatið eða grípa það með sér á hlaupum og borða beint með skeið
Gangi þér vel og gleðilega heilsu!
Sveindís Þórhallsdóttir útskrifaðist í vor með BS gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands en býr nú í fallegum bæ á Finnlandi þar sem hún leggur stund á mastersnám í íþrótta- og æfingasálfræði. Sveindís er jafnframt einkaþjálfari, heldur úti fjarþjálfun á vefsíðu sinni og hefur mikinn áhuga á hvers kyns hreyfingu og heilbrigði.
Pole fitness á hug hennar allan og fríkvöldunum er oftar en ekki varið í að teygja fyrir framan sjónvarpið. Hún á eitt stykki frábæran kærasta og dreymir um að bæta kisu á heimilið.