HEIMILI: Myndirnar tala sínu máli en borðin, stólarnir litasamsetningin og fylgihlutirnir í hverju herbergi eru frekar kúl.
Myndirnar sýna falleg heimili og hlutum sem eru smekklega raðað saman.
Mjög “skandínavískt” og ferskt. Myndatakan er líka stílhrein og flott hjá hinni dönsku Heidi Lerkenfeldt en hún hefur einnig tekið myndir fyrir auglýsingaherferð vegna heimilislínu DAY HOME.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.