Heidi Klum er þekkt fyrir það að taka búninginn sinn skrefinu lengra þegar kemur að því að dressa sig upp fyrir Hrekkjavökuna.
Heidi mætti í sitt árlega hrekkjavökupartý sem haldið var í New York sem gömul kona og smáatriðin, já smáatriðin voru til staðar get ég sagt þér! Hún var með hrukkur, berar æðar, lappirnar og hendurnar með elliblettum. Fyrirsætan mætti með staf og hárið var grátt og “gamalt”.
Heidi segir að búningurinn eða gervið sé ekki valið á síðustu stundu heldur fara margir mánuðir í undirbúning. Heidi fær færasta fagfólkið í bransanum til að farða sig og koma sér í gervi. Í þetta sinn voru það Bill Corso og Mike Marino sem sáu um að koma henni í karakterinn en þeir eru margverðlaunaðir fyrir verk sín í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.
Heidi finnst Hrekkjavakan vera eitt það skemmtilegasta sem til er og hún leggur mikinn metnað í búningana sína. Sömuleiðis vill fyrirsætan að gestinir í partýinu geri slíkt hið sama, henni finnist fátt skemmtilegra en að láta gestina koma sér á óvart með flottum og frumlegum gervum.
Skoðaðu Heidi hér að neðan en fyrirsætan leyfði aðdáendum sínum að fylgjast með hvernig gervið varð til á Instagram síðunni sinni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig