Ofurmódelið Heidi Klum nýtur lífsins þessa dagana með börnum sínum og kærasta á Hawaii.
Heidi sem skildi við söngvarann Seal á síðasta ári segir að það sé alveg sama hvað hún geri, hvort sem hún er með nýja hárgreiðslu, klæðist einhverjum fötum eða fái sér nýjan kærasta þá á fólk alltaf eftir að gagnrýna hana. Heidi segist þó ekki hlusta á þessar neikvæðnisraddir og lifi eftir því að gera það sem geri sig hamingjusama.
Fyrrverandi lífvörður fyrirsætunnar Martin Kristen er núverandi kærasti hennar en þau hafa þekkst í fjögur ár og hún segir að hann sé afar góður við börnin hennar, hann leiki við þau og verndi þau og hún treystir honum fullkomlega.
Heidi er í fantaformi núna og það er greinilegt að hún er hamingjusöm með nýja kærastanum sínum og lifir eftir því að gera það sem gerir hana hamingjusama.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig