Heidi Klum ætlaði að slaka á og njóta lífsins á Hawaii með fjölskyldunni sinni og kærasta á páskadag en þá kom stór alda sem setti fríið alveg úr skorðum.
Heidi lá á ströndinni þegar sonur hennar Henry og barnfóstra hans voru að leika sér í sjónum. Allt í einu kom stór alda sem var straummikil og bar þau með sér ofan í sjóinn en betur fór en á horfðist.
Heidi stökk strax til ásamt Martin kærasta sínum og hljóp út í sjó. Hún sagðist hafa orðið afar smeyk um Henry en einnig að hann væri sterkur sundmaður og hafi náð að synda til hennar að lokum. Þetta hefði svo sannarlega getað farið verr og Heidi segir að sér hafi verið mjög órótt meðan á þessu öllu stóð.
Minnstu munaði að illa færi en skjót viðbrögð barnapíunnar og annara urðu til þess að ekki fór illa. Hér að neðan má sjá myndir frá björguninni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig