Berbrjósta feministar sátu um fyrirsætuna Heidi Klum í sjónvarpssal í gærkvöldi og spruttu svo fram í beinni útsendingu.
Konurnar voru þá á gallabuxum einum fata og búnar að krota á bringuna á sér. Þar stóð Heidi Horror Picture Show en Heidi er einn dómara í Top Model keppninni vinsælu í Þýskalandi.
Það er ekki alveg á hreinu hverju nákvæmlega stelpurnar voru að mótmæla en þær tilheyra FEMEN hópnum sem er þekktur fyrir mótmæli af þessu tagi og hafa þær meðal annars sprottið fram með berar áletraðar bringur til að mótmæla kynlífs túrisma, trúarbrögðum, alþjóðlegum hjónabandsmiðlurum og fleiru.
Hópurinn var upprunalega stofnaður í Úkraínu.
Ekki tók langan tíma að vísa dömunum burt af sviðinu og þátturinn hélt áfram. Heidi var öll hin svalasta meðan á þessu stóð og hélt kúlinu enda ýmsu vön.
Næst ætlar hún svo að vera ein af fjórum dómurum í America’s got talent en með henni verða Mel B. Howard Stern og Howie Mandel. Þá má nú líka búast við smá fjöri.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.