Það nýjasta í tískunni þegar kemur að fylgihlutum eru tvær töskutegundir. Annars vegar bakpokar og svo mittistöskur eða svokallaðir pungar.
Ég mæli með þessari töskutísku, sérstaklega bakpokunum fyrir skólafólk. Hér eru nokkrar týpur héðan og þaðan…
1. Monki
2. Asos.com
3. Mulberry – minn drauma bakpoki. Heldur dýr þó!
4. Stella McCartney – líka algjör draumur en veskið býður ekki upp á slíkan draum í bili!
5. H&M
6. Eastpak – fæst í Eymundsson m.a.
7. Pieces
1. Pieces – fæst í Vero Moda
2. asos.com
3. Moschino
Ég veit að fleiri verslanir selja slík veski, t.d. Gallerí 17 og Salka í Eyjum!
Rihanna hefur verið gjörn á að skarta þessu trendi undanfarið, m.a. á tískusýningu Chanel í París í vor. Þá mátti finna pungatöskur á tískupöllum Chanel nú fyrir stuttu.
Mæli með! Og þessar fashionistur líka…
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com