Gallapils eru að komast aftur í tísku eftir dágóða pásu. Reyndar er flest allt úr gallaefni í tísku um þessar mundir; gallaskyrtur, gallajakkar, gallabuxur og núna gallapils!
Olivia Palermo fashionista með meiru klæddist slíku á tískuvikunni í New York á dögunum. Klæddist meira að segja denim on denim klæðnaði sem oft hefur verið talið hið mesta tabú!
Ég fann nokkur gallapils hér og þar…
1. Esprit
2. H&M
3. Monki
4. Topshop
5. Topshop
6. Stylebop.com
Gallapils er a.m.k. komið á minn innkaupalista.
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com