Eitt af skemmtilegu trendum haustsins er samstæður klæðnaður, efri og neðri patur í stíl.
Það hefur þónokkuð farið fyrir þessum svokölluðum matchy-matchy settum að undanförnu á tískubloggum og tískupöllum sem farið er að skila sér einnig í verslanir.
Þetta eru nokkur matchy sett sem ég hef rekist á hjá verslunum á Íslandi. Ég ætla þó ekki að ábyrgjast það að þetta sé enn til í verslunum þeirra, mæli þó með að þið tékkið á því!
Kate Moss klæddist sinni eigin matchy hönnun en þessar flíkur eru úr nýjustu línu hennar fyrir Topshop.
Hér að neðan eru nokkrar hugmyndir að slíkum klæðnaði…
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com